Hinn svokallaði twittervargur NotLandsbankinn, sem á íslensku kallar sig Ekki Landsbankinn, er hættur að tvíta, í bili að minnsta kosti. Hann lauk árinu með því að veita hefðbundin skammarverðlaun sín með röð Twitter-færslna fyrir áramót og lauk svo með eftirfarandi færslu: „Eitt enn. @NotLandsbankinn er hættur á Twitter og þakkar fyrir sig. Bókin, „IPO beibí...“ kemur út síðar á árinu. Over and out. Í bili.“

Þegar NotLandsbankinn byrjaði að tvíta árið 2011 olli hann nokkru fjaðrafoki innan Landsbankans og var gerð árangurslaus leit að höfundinum.