Viðskiptavinir Nova sem eru með iPhone 5, iPhone 5c og iPhone 5s farsíma hafa núna möguleikann á að fá 4G / LTE þjónustu í símann sinn. Viðskiptavinir fá senda uppfærslu í iPhone símann sinn. Hægt er að fá 4G/ LTE strax með því að tengja við iTunes og uppfæra símann. Eftir uppfærslu mun LTE standa á skjá símans. 4G kerfið styður yfir 10 sinnum meiri nethraða en 3G.

„Við hjá Nova höfum unnið að því um langt skeið að ná þessum beina samningi við Apple og það er mikið fagnaðarefni að það hafi nú tekist. iPhone er vinsælasti farsíminn hjá viðskiptavinum Nova og það eru því mikil tímamót fyrir Nova að geta boðið 4G þjónustu í þessa vinsælu farsíma,“ segir Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, í tilkynningu.

Nova er eina farsímafyrirtækið á Íslandi sem býður 4G þjónustu í farsíma, að því er fram kemur í tilkynningu frá Nova. Fyrirtækið hóf 4G þjónustu á Íslandi í apríl á þessu ári, fyrst símafyrirtækja á Íslandi. 4G þjónustan er í boði á öllu höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesbæ, Akureyri, Selfossi og sumarhúsasvæðunum í Skorradal og Grímsnesi. 4G er sambærilegt við ljósleiðara eða um 20 – 40 Mb/s hraða til notenda.