Nova er á meðal fyrstu farsímafyrirtækja í Evrópu til að setja upp næstu kynslóð fjarskiptaþjónustu, svokallað 4,5G kerfi, en það mun að meðaltali þrefalda nethraða notenda frá 4G. Nova, sem verður 10 ára í desember, hefur hrint af stað sérstöku tækniverkefni, undir yfirskriftinni Nova X, sem felur í sér innleiðingu á fjölmörgum tækninýjungum.

Fjarskiptafyrirtækið Nova kynnti í morgun að fyrirtækið hafi sett í loftið fyrstu 4,5G sendana. Nova verður á meðal fyrstu farsímafyrirtækja í Evrópu til þess að hefja slíka þjónustu en áætlað er með nýja kerfinu muni nethraðinn um það bil þrefaldast. Um er að ræða viðbrögð fyrirtækisins við stóraukinni netnotkun sem Nova áætlar að muni vaxa áfram um tugi prósenta á ári segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Það er fyrst og fremst streymi á lifandi efni í háum myndgæðum sem kallar á aukna flutningsgetu fjarskiptakerfa og aukin eftirspurn eftir því sem fyrirtækið segir snerta Nova sérstaklega, sem stærsta veitanda farsímaþjónustu á Íslandi. Segja þeir að viðskiptavinir fyrirtækisins noti netið mun meira en viðskiptavinir annarra fjarskiptafyrirtækja. Til marks um það þá fór 63,8% af allri netumferð í farsímum hér á landi í fyrra, um farsímakerfi Nova.

Nova hefur á síðustu vikum sett upp fyrstu 4,5G sendana og því geta þeir sem eru með nýjustu farsímana nú þegar tengst 4,5G kerfinu, en á afmörkuðum svæðum til að byrja með. Nýjustu tegundir farsíma styðja 4,5G nethraða; má þar nefna Samsung S7 og Samsung S8, auk iPhone8 og iPhoneX sem er væntanlegur.

VoLTE tæknin streymir símtöl

Nova, sem fagnar 10 ára afmæli í desember, hefur hrint af stað sérstöku tækniverkefni undir yfirskriftinni Nova X, sem felur í sér innleiðingu á fjölmörgum tækninýjungum. Helst má nefna uppfærsluna í 4,5G en einnig er hafin innleiðing á annarri nýrri tækni sem nefnist VoLTE (Voice over LTE) og felur hún í sér að símtölum er streymt yfir netið, í stað þess að þau fari um símkerfi.

VoLTE mun stórbæta bæði hljóm í símtölum sem og gæðum myndsímtala en um er að ræða bæði háskerpu hljóð og mynd. Þá mun tenging símtala verða margfalt hraðari. Stuðningur við VoLTE tæknina verður í flestum nýjum farsímum en er enn sem komið er eingöngu í Samsung S7 hjá Nova.

Samstarfsaðili Nova í uppbyggingu 4,5G fjarskiptakerfisins og VoLTE er alþjóðlega fyrirtækið Huawei Technologies en Huawei er leiðandi í þróun háhraða farsímatækni.

Stefna að uppsetningu 5G árið 2020

Liv Bergþórsdóttir forstjóri fyrirtækisins segir það hafa verið leiðandi í innleiðingu nýrra kynslóða fjarskiptatækni, en Nova áætlar að fjárfesta fyrir um 1 milljarð á ári næstu tvö árin. Megnið af fjárfestingum félagsins mun fara í uppbyggingu 4,5G kerfisins sem mun halda áfram allt til ársins 2020 en þá má búast við að fyrstu 5G sendar Nova verði teknir í notkun.

„Fyrirtækið setti upp fyrsta 3G farsímakerfið hér á landi árið 2006, hóf 4G þjónustu árið 2013 fyrst fyrirtækja og nú 4,5G þjónustu,“ segir Liv.

„Hver ný kynslóð fjarskiptakerfa hefur haft í för með sér margföldun á hraða og þar með á notkunarmöguleikum farsíma, úrvali smáforrita og annarra samskipta. Aftur og aftur sjáum við hvernig ný öflugri fjarskiptakerfi ryðja brautina og gera nýsköpun og framfarir mögulegar.”