Nova hefur ákveðið að hefja undirbúning á skráningu hlutabréfa félagsins á aðalmarkað Kauphallarinnar og stefnir að skráningu á fyrri helmingi þessa árs. Nova hefur gengið frá hlutafjáraukningu í aðdraganda fyrirhuguðu skráningarinnar.

Samhliða hlutafjáraukningunni hafa núverandi hluthafar selt hluta af eign sinni. Nýir hluthafar eignast um 36% hlut í félaginu. Meðal nýrra hluthafa eru sjóðir í rekstri Stefnis, Íslandssjóða og Landsbréfa. Hluthafalisti ásamt ársreikningi og ítarlegri fjárhagsupplýsingum verður birtur í aðdraganda útboðsins.

Sjá einnig: Vilja innlenda fjárfesta í Nova

„Tilgangur hlutafjáraukningarinnar er að styðja enn frekar við framtíðarvöxt félagsins og áframhaldandi fjárfestingar svo félagið viðhaldi forskoti sínu í framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina sinna,“ segir í fréttatilkynningu.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi við framangreinda sölu og mun hafa umsjón með skráningu félagsins á markað.

Pt Arctic Fund I, fjárfestingarsjóður bandaríska fjárfestingafélagsins Pt Capital, eignaðist 94,5% hlut í Nova við kaup á helmingshlut Novator í lok síðasta sumars. Viðskiptablaðið sagði frá því í október að dóttir og einn fjárfestingarstjóra kínversks milljarðamærings sem handtekinn var árið 2020 í Kína væru meðal fjárfesta í Pt Arctic Fund I.

Hugh Short, forstjóri Pt Capital, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið í nóvember að skráning á markað kæmi til greina hjá Nova, meðal annars þar sem Pt Capital vildi hafa innlenda samstarfsaðila með sér í liði. Hann bætti jafnframt við að þrátt fyrir að sjóðir á borð við Pt Arctic Fund I hefðu almennt lítinn líftíma væri sjóðurinn ekki undir neinni pressu að selja hlut sinn í Nova.

Viðskiptablaðið greindi frá því að lykilstarfsmenn Nova hefðu eignast 11% hlut í Nova í desember með nýtingu kauprétta.

Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova:

„Fjarskiptafyrirtæki eru í eðli sínu mikilvæg innviðafyrirtæki og er Nova á meðal stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækja landsins. Vel heppnuð markaðssetning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hefur skilað Nova sterkri markaðshlutdeild og ánægðum og tryggum viðskiptavinum. Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfsfólks hafa skilað félaginu miklum ávinningi og tekjuvexti undanfarin ár. Við fögnum því að fá góðan liðstyrk inn í eigendahópinn og erum spennt fyrir því að stíga það skref að skrá félagið á markað. Með skráningu félagsins fjölgar tækifærum fjárfesta til að koma að uppbyggingu fjarskiptainnviða á Íslandi. Ég hef starfað í ýmsum hlutverkum hjá Nova allt frá stofnun félagsins og hlakka til þessa nýja kafla í sögu Nova.“

Hugh Short, stjórnarformaður Nova og forstjóri Pt Capital LLC:

„Við hjá Pt Capital og Nova erum ánægð með nýja hluthafa og hlökkum til að vinna með þeim í átt að frekari vaxtartækifærum og til að styðja við skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Nova hefur sýnt stöðugan vöxt á fjarskiptamarkaði og hefur náð sterkri markaðshlutdeild þar. Okkar stefna er að virkir innviðir fjarskiptakerfis okkar séu í eigu Nova. Fyrirtækið stefnir á framhaldandi vöxt og frekari stuðning við uppbyggingu á 5G fjarskiptakerfi.“

Fyrirtækið á og rekur sína eigin virku innviði vítt og breitt um landið. Hjá Nova starfa um 150 starfsmenn á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Selfossi. Í tilkynningunni segir að Nova sé komið lengst í uppbyggingu 5G á Íslandi.

Nova og Sýn seldu á síðasta ári óvirka fjarskiptainnviði til innviðasjóðs í stýringu hjá Digital Bridge. Fram kom í samrunatilkynningu til Samkeppniseftirlitsins að Nova myndi selja 167 sendastaði til sjóðsins.