Novator hefur ákveðið að fresta tillögum sínum um skipulagsbreytingar á finnska símafélaginu Elisa að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Í tilkynningunni kemur fram að eftir sem áður sækist Novator eftir tveimur stjórnarsætum í félaginu. Boðað hefur verið til hluthafafundar að ósk Novators þann 21. janúar næstkomandi.