Samkomulag hefur náðst um framboð til stjórnar í finnska fjarskiptafélaginu Elisa. Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, fagnar því, að því er fram kemur í tilkynningu en það fær tvo fulltrúa í stjórn, þá Orra Hauksson og Tómas Ottó Hansson.