Félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator Bulgaria Holding, gekk í dag formlega frá kaupum á 34% hlut í búlgarska bankanum EIBANK, segir í tilkynningu. Fyrst var sagt frá kaupunum í júlí.

Kaupin eru háð samþykki fjármálayfirvalda í Búlgaríu. EIBANK er skráður í kauphöllina í Búlgaríu og segir talsmaður Novator Bulagira að yfirtökuskylda hafi ekki myndast við kaupin. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

EIBANK var stofnaður árið 1994 og eru heildareignir hans um 511 milljónir evra. Starfsmenn eru um eitt þúsund.