Novator leggur fram frjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé félagsins Acatavis. Félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur ákveðið að leggja fram frjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Actavis Group hf. í A-flokki. Félög tengd Novator eiga nú þegar sem nemur um 38,5% af hlutafé félagsins í A-flokki og er Björgólfur Thor jafnframt stjórnarformaður þess. Markmið Novator er að eignast allt hlutafé félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Tilboðið verður gert af hálfu óstofnaðs eignarhaldsfélags og verður lagt fram í evrum. Tilboðsverð verður EUR 0,98 á hlut, sem miðað við opinbert viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands fyrir evru þann 9. maí sl. og jafngildir 85,23 krónum. Verð þetta er 9% hærra en lokagengi Actavis Group hf. í OMX kauphöllinni í Reykjavík þann 9. maí síðastliðin. Í tilkynningu kemur fram að þetta er hæsta gengi, sem boðið hefur verið fyrir hlutabréf í félaginu og ríflega 21% hærra en meðaltals lokagengi síðastliðinna sex mánaða. Það er mat Novator að verðið endurspegli á mjög sanngjarnan hátt raunvirði félagsins á þessum tíma, einkum og sér í lagi í samanburði við önnur samheitalyfjafyrirtæki á markaði og nýlegar yfirtökur í geiranum.

Á síðustu misserum hafa átt sér stað miklar sviptingar í lyfjageiranum. Samþjöppun er hröð, barátta um leiðandi stöðu á lykilmörkuðum afar hörð og verðsamkeppni fer sífellt vaxandi. Í slíku umhverfi telur Novator mikilvægt fyrir árangursríka framtíðaruppbyggingu Actavis að afskrá félagið af markaði svo það búi ekki lengur við þær ríku kröfur og skyldur, sem lagðar eru á skráð félög, þ.m.t. um upplýsingagjöf. Novator mun því óska eftir afskráningu félagsins úr OMX kauphöllinni eins fljótt og auðið er.

Novator hefur í hyggju að fjármagna umtalsverðan hluta kaupverðs með lánsfé og því ljóst að Actavis verður á samstæðugrundvelli verulega skuldsett að yfirtökunni lokinni. Novator mun beita sér fyrir enn aukinni áhættusækni í rekstri félagsins, fækka í stjórn þess og birta aðeins á opinberum vettvangi þær upplýsingar, sem almennt er krafist af óskráðum félögum. Það er mat Novator að sú aukna áhætta, sem fylgir slíkri skuldsetningu og stefnu, sé ekki heppileg fyrir almenna fjárfesta og því rétt að gefa öðrum fjárfestum tækifæri til útgöngu áður en að slíkum breytingum kemur.

Novator vonast til að stjórnendur og starfsfólk Actavis bregðist vel við fyrirhugaðri yfirtöku og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við þennan öfluga hóp.

Tilboð til hluthafa félagsins í A-flokki ásamt skilmálum verður lagt fram með formlegum hætti innan skamms, í samræmi við ákvæði laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti um valfrjáls yfirtökutilboð.