Hrávörumarkaður Brent í London skráir nú framvirkt verð á olíu til afgreiðslu í nóvember. Það var í gær tæpir 72 dollarar en hefur lækkað í dag og er nú 71,32 dollara á tunnu.

Á markaði í New York er enn stuðst við októberverð sem er þessa stundina 72,35 dollarar á tunnu.