Ríflega 1,6 milljón farþega fóru um Keflavíkurflugvöll á nýliðnu ári. Það samsvarar tæplega 20% fjölgun á milli ára. Farþegar á leið frá landinu voru 672.196 talsins á árinu 2004 en voru 572.760 á árinu 2003, sem samsvarar 16,2% fjölgun. Farþegum á leið til landsins fjölgaði hins vegar meira, úr 583.832 í 692.505, sem samsvarar 18,6% fjölgun á milli ára.

Skiptifarþegum fjölgaði um 26%, úr tæplega 210 þúsund í ríflega 264 þúsund. Í desember fjölgaði farþegum sem fóru um Keflavíkurflugvöll um 12,39%, úr77.450 í 87.044.