Neytendasamtökin hafa á heimasíðu sinni varað fólk við því að eiga viðskipti við byggingarfélagið Reisir ehf.

Í grein á vef samtakanna kemur fram að Reisir hafi undanfarið birt heilsíðuauglýsingar um þakviðgerðir með svokallaðri Pace aðferð. Vitnað er í grein úr síðasta Neytendablaði þar sem fyrrv. viðskiptavinur félagsins segir farir sínar ekki sléttar og hafi því leitað til Neytendasamtakanna um liðsinni en ekki haft árangur sem erfiði.

„Neytendasamtökin hafa í nærri 60 ár annast milligöngu deilumála og eiga daglega í samskiptum við seljendur,“ segir á vef samtakanna.

„Það er undantekning að seljendur sýni ekki samstarfsvilja þegar kemur að því að leysa úr ágreiningi.  Í ljósi þessa geta Neytendasamtökin ekki mælt með því að fólk eigi viðskipti við fyrirtækið Reisi ehf.“

Fyrrnefnd grein á vef samtakanna er svohljóðandi:

„Maður nokkur fékk tilboð í Pace gúmmíhúðun á þak húss síns frá Reisi ehf. Tilboðið hljóðaði upp á rúmlega 600.000 kr. og lagði fyrirtækið mikla áherslu á 10 ára ábyrgð og skjót viðbrögð við kvörtunum.

Eftir að þakið hafði verið hreinsað og húðað með grárri Pace gúmmíhúð kom í ljós að vinnan var ekki fullnægjandi þar sem allvíða sást í rauðar skellur og á mörgum stöðum sást í rauða naglahausa, en þakið var rautt fyrir. Maðurinn hringdi þá í Reisi ehf. og var starfsmaður sendur á staðinn sem viðurkenndi að illa hefði verið að verki staðið og eyddi heilum degi í að bletta það sem þurfti.

Fljótlega kom í ljós að þakið hafði verið blettað með aðeins ljósari lit og er því allt í ljósum skellum. Maðurinn hafði aftur samband við Reisi ehf. og kvartaði en var tjáð að þetta tæki tíma að jafna sig sem það hefur þó enn ekki gert. Maðurinn sendi tölvupósta til fyrirtækisins en hafði ekki erindi sem erfiði og leitaði því næst aðstoðar Neytendasamtakanna.

Neytendasamtökin sendu þrjú bréf til Reisis ehf. sem öll voru endursend. Einnig hefur margoft verið hringt í símanúmer fyrirtækisins en án árangurs. Því hefur ekki tekist að fá nein svör frá fyrirtækinu vegna þessa máls. Neytendasamtökin hafa fengið önnur mál vegna sama fyrirtækis þar sem illa hefur gengið að ná fram úrbótum og forsvarsmenn fyrirtækisins láta ekki ná í sig.“