Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur fjárfest í fyrirtækinu Ankeri Solutions. Eftir fjárfestinguna mun Nýsköpunarsjóður eiga um 12% hlut í félaginu. Fjárfesting Nýsköpunarsjóðs mun stuðla að þróun á vörum Ankeri og frekari vexti fyrirtækisins.

Ankeri starfar á alþjóðlegum skipamarkaði, sem er ábyrgur fyrir um 90% af öllum vöruflutningum heimsins. Markmið Ankeri að verða fyrsta fyrirtækið á markaði til að tengja saman hagsmuni eigenda og leigjenda skipa með bættri upplýsingagjöf, betri orkunýtingu og minni útblæstri skipaflotans. Þannig verður búinn til vettvangur, sem viðurkenndur er á alþjóðavísu, þar sem upplýsingum um hagkvæmni skipa er safnað saman og þær tengdar við frammistöðuábyrgðir í þeim samningum sem gilda milli eigenda og leigjenda skipa. Sú tækni sem Ankeri er að þróa miðar að því að eigendur skipa geti markaðsett þau út frá rekstrarhagkvæmni og að leigjendur geti valið skip út frá viðurkenndum upplýsingum um getu, rekstur, umhverfisáhrif og fleiri þætti.

Félagið Ankeri Solutions ehf. var stofnað árið 2016 af Leifi Kristjánssyni og Kristni Aspelund, sem saman hafa áratuga reynslu af markaðssetningu, hönnun og framleiðslu á hugbúnaðartækni í skiparekstri. Ankeri hlaut stuðning frá Átaki til atvinnusköpunar hjá Nýsköpunarmiðstöð og Sprotastyrk frá Tækniþróunarsjóði vorið 2017.

Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins:

„Með fjárfestingu í Ankeri lýsir Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins yfir tiltrú á verkefninu og þeim sem að því standa. Við höfum um árabil fylgst með þeim Leifi og Kristni í störfum sínum og vitum að þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu af alþjóðlegum skipamarkaði. Með þeim tæknilausnum sem þeir eru nú að vinna að er það von okkar að enn á ný verði íslensk tæknifyrirtæki í farabroddi þegar kemur að alþjóðlegum úrlausnarefnum.“

Kristinn Aspelund, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Ankeri:

„Við í Ankeri erum spennt yfir því að fá Nýsköpunarsjóð til liðs við okkur í því að breyta samskiptum á milli skipaeigenda og leigjenda skipa. Fyrstu viðtökur markaðarins við Ankeri hafa verið framar björtustu vonum. Frá því fyrsta varan okkar fór í loftið fyrr í haust höfum við séð mikinn vöxt í notkun hennar. Því er það mikilvægt að geta tekið næstu skref í þróun Ankeris. Við hlökkum til að fá Nýsköpunarsjóð um borð með okkur að vinna að frekari vexti félagsins.“