Fjármála- og efnahagsráðuneytið auglýsir í dag að embætti bankastjóra Seðlabanka Íslands sé laust til umsóknar. Fram kemur í auglýsingu að seðlabankastjóri stýrir Seðlabanka Íslands og ber ábyrgð á rekstri hans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru falin öðrum samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands. Umsóknarfrestur er til 27. júní næstkomandi.
Seðlabankastjóri er skipaður til fimm ára í senn og mun samkvæmt því sá eða sú sem sest í stól seðlabankastjóra verma hann fram í ágúst árið 2019.
Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra tvisvar sinnum. Már Guðmundsson var skipaður í stöðuna í lok sumars 2009 og rennur skipunartími hans út samkvæmt því á þessu ári. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra útlokaði ekki í samtali við VB Sjónvarp í febrúar að Már verði ráðinn áfram.
Bjarni tilkynnti í febrúar að endurskoðun laga um Seðlabankans stæði fyrir dyrum og var stofnaður starfshópur sem vinnur að því að leggja mat á æskilegar breytingar. Hópurinn hefur það að markmiði að treysta trúverðugleika og sjálfstæði bankans og traust á íslenskum efnahagsmálum. Már hefur lýst því yfir opinberlega að hann muni hugsanlega sækja um starfið á ný. Það fari þó eftir því hvernig honum hugnist þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á Seðlabankanum.