Verið er að ganga frá samningum á milli félags Huangs Nubo og sveitarfélaga á Norðurlandi. Þetta segir Halldór Jóhannsson, talsmaður Nubo hér á landi. Í Lögbirtingablaðinu á þriðjudaginn kom fram að búið væri að stofna félagið Zhongkun Europe ehf.

Stofnendur félagsins eru tvö önnur félög, þau Beijing Zhongkun Investment Group, sem er að mestu í eigu Nubos, og Beijing Toreador Investment Co., sem er í eigu Nubos og sonar hans, Sichens Huang. Þeir feðgar verða einmitt í stjórn hins nýstofnaða félags til viðbótar við Xu Hong aðstoðarforstjóra Beijing Zhongkun Investment Group.