Huang Nubo hefur ekki gefist upp á áætlunum sínum fyrir fjárfestingar hér á landi en hann segist vera mjög reiður og pirraður yfir fjárfestingarumhverfinu hér á landi. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg um málið en hann segist ekki hafa fengið neinar nánari upplýsingar um hvernig hann ætti að bera sig að í málinu frá stjórnvöldum hér á landi. Hann hafi ekki verið beðinn um viðbótar upplýsingar og viti ekki hvaða upplýsingar það eru sem stjórnvöld telji að þeim vanti.

Í viðtalinu við Bloomberg segir Nubo enn fremur að hann ætli ekki að draga umsókn sína tilbaka heldur vilji hann bíða eftir að stjórnvöld segi að þau óski ekki eftir fjárfestingu hans.