Birt hefur verið upptaka af símtali milli Viktoríu Nuland, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Geoffrey Pyatt sendiherra Bandaríkjanna í Úkraníu.

Í samtalinu, sem líklega var hlerað og birtist á Youtube, ræða diplómatarnir um ástandið í Úkraníu. Í samtalinu segir Victoria "Fuck EU" eða fari Evrópusambandið til fjandans.

Aðstoðarutanríkisráðherra hefur verið upptekinn síðan upptakan birtist við að biðja starfsbræður sína í Evrópu afsökunar á ummælum sínum.