Ný 150.000 króna smálán Smálánafyrirtækin Kredia og Hraðpeningar hækkuðu í vikunni fjárhæð hámarkslána, sem viðskiptavinir geta tekið hjá fyrirtækjunum. Bæði bjóða þau nú upp á allt að 150.000 króna lán til sextíu eða níutíu daga. Í báðum tilvikum er lánskostnaður tæpar 50.000 krónur og því myndi lántaki þurfa að greiða til baka tæplega 200.000 krónur, sem skipt er upp í tvær tæplega 100.000 króna greiðslur. Keppinauturinn 1909.is er enn með hámarkslánsfjárhæð 100.000 krónur til þrjátíu daga.