Örtröð myndaðist í morgun fyrir framan nýja Apple verslun í Lyngby í eigu Íslendinga þegar að verslunin var opnuð. Um 200 manns biðu í alla nótt og klukkan tíu í morgun beið á fimmta hundrað manns fyrir utan verslunina. Hamagangurinn var slíkur að lögreglan sá ástæðu til að vera viðstödd og hleypti hún fólkinu inn í hollum.
Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri og einn eigenda Apple búðanna á Íslandi og í Danmörku, segir í fréttatilkynningu frá félaginu að móttökurnar hafi verið mun kröftugri en hann hafi búist við ? þetta sé góð hvatning fyrir framhaldið, en fyrirhuguð er opnun fleiri sérhæfðra Apple-verslana á Norðulöndum. Verslunin í Lyngby er önnur í röðinni, en fyrir reka íslensku aðilarnir Apple-verslun í hjarta Kaupmannahafnar við Gammel Mønt.