Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hefur kynnt ný bankaráð Kaupþings, Landsbankans og Glitnis.

Bankaráð Kaupþings skipa: Magnús Gunnarsson sem er formaður, Auður Finnbogadóttir, Erna Bjarnadóttir, Helga Jónsdóttir og Drífa Sigfúsdóttir.

Bankaráð Landsbankans skipa Ásmundur Stefánsson sem er formaður, Erlendur Magnússon, Stefanía Katrín Karlsdóttir, Salvör Jónsdóttir og Haukur Halldórsson.

Bankaráð Glitnis skipa Valur Valsson formaður, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Katrín Ólafsdóttir, Guðjón Ægir Sigurjónsson og Ólafur Ísleifsson.