Ný Blue Lagoon verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið opnuð og var formleg opnun verslunarinnar fimmtudaginn 31. ágúst síðastliðinn.

Í versluninni eru Blue Lagoon húðvörur fáanlegar og boðið er upp á orkumeðferðir á heilsulindarsvæði (spa) verslunarinnar. Heilsulindir er að finna í mörgum helstu flugstöðvum heims og nýtur þessi þjónusta aukinna vinsælda, segir í fréttatilkynningu verslunarinnar.

Anna G. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins hf., segir opnun verslunarinnar vera ánægjulegt skref fyrir Bláa Lónið hf. ?Í starfsemi okkar leggjum við áherslu á nýsköpun og þróun. Verslunin og spa-meðferðir í flugstöðinni er þjónusta sem okkur þykir sérstaklega ánægjulegt að geta veitt bæði íslenskum og erlendum farþegum sem eiga leið um flugstöðina."

Hönnun verslunarinnar er í höndum ítalska hönnunarfyrirtækisins Design Group Italia og er sterk skírskotun í hönnuninni til náttúrulegs umhverfis Bláa lónsins, segir í tilkynningunni.