Hugmyndir um stækkun Keflavíkurflugvallar voru kynntar á opnum fundi í Leifsstöð í gær. Fundurinn var hluti af kynningarátaki vinnuhóps á vegum Isavia sem hefur unnið að þarfagreiningu fyrir flugvöllinn. Vinnuhópurinn leggur m.a. til að nýrri flugbraut frá norðri til suðurs verði bætt við vestan megin við núverandi flugbrautir, og að braut frá norðvestur til suðausturs, sem nú er þegar gert ráð fyrir í aðalskipulagi, verði hliðruð til.

Með þessu væri hægt að tvöfalda afkastagetu flugvallarins, en árið 2011 fóru 63% allra flughreyfinga á Leifsstöð, þ.e. lendingar og flugtök, um núverandi norður-suður braut. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Fjöldi farþega um Leifsstöð er nú um 2,3 milljónir farþega á ári, en verður líklega á bilinu 3 til 6 milljónir á ári árið 2030. Vinnuhópurinn leggur til að þeim vexti verði mætt með því að stækka flugstöðina til austurs. Sigurður H. Ólafsson, skipulagsfulltrúi Isavia, bendir á að það séu takmarkaðir stækkunarmöguleikar í þá átt vegna núverandi legu flugbrautarinnar og því sé einnig gert ráð fyrir