Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvog krónunnar í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2003. Vogin var síðast endurskoðuð í júlí 2003. Nýja vogin mun mæla gengisbreytingar frá gengisskráningu föstudaginn 16. júlí 2004 og þar til næsta endurskoðun fer fram um svipað leyti að ári.

Helstu breytingar frá fyrri vog eru að vægi evru eykst um 3,3 prósentur en vægi Bandaríkjadals minnkar um 2,9 prósentur. Vægi evrunnar hefur einkum þyngst í innflutningi vöru og þjónustu. Minna vægi Bandaríkjadals skýrist að stærstum hluta af minni vöruinnflutningi frá Bandaríkjunum. Þó drógust önnur viðskipti við Bandaríkin einnig saman á árinu 2003.

Gengisskráningarvogin er endurskoðuð árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að hún endurspegli ætíð eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta.

Seðlabankinn telur rétt að leggja á það áherslu að hér er aðeins um tæknilega breytingu að ræða sem varðar útreikninga á breytingum á gengi krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Breytingin hefur engin áhrif á stefnu bankans í peningamálum.