Íslandsbanki og Spölur boða til fréttamannafundar í Steinaríki Íslands (Hvalfjarðargangasafninu) að Görðum á Akranesi, á morgun. Tilefni fundarins er að Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, munu undirrita samninga um endurfjármögnun lána Spalar og kynnt verður ný gjaldskrá fyrir Hvalfjarðargöng.