Undirbúningur að gerð nýrra Hvalfjarðarganga er hafinn hjá Vegagerðinni. Göngin munu verða samhliða núverandi göngum, að því er segir í Morgunblaðinu í dag.

Að sögn G.Péturs Matthíassonar upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar er búið að semja við verkfræðistofuna Mannvit um úttektir og undirbúning vegna ganganna og verður úttektin unnin á þessu ári.

Fram kom hjá Gísla Gíslasyni stjórnarformanni Spalar ehf. á aðalfundi félagsins í gær, að byggingarkostnaður nýrra ganga ásamt tengingu við eldri göng er áætlaður rúmlega 13,5 milljarðar króna m/vsk. á núverandi verðlagi. Verktími er áætlaður 3- 4 ár frá ákvörðunartöku til þess tíma að bæði göngin verðakomin í notkun.

Síðasti gjalddagi lána Spalar ehf. vegna Hvalfjarðarganganna er í september árið 2018. Aukning umferðar og þar með tekna leiðir til þess að afhending ganganna til ríkisins gæti mögulega orðið áður en kemur að greiðslu síðustu afborgunar.