Verulegur samdráttur var á milli ára í nóvember í nýjum íbúðalánum innlánsstofnana, eða 77%, segir greiningardeild Landsbankans.

?Samdráttur á milli ára hefur verið svipaður frá miðju ári. Ný útlán banka náðu hámarki skömmu eftir að þau hófust haustið 2004 og fóru hæst í rúma 34 milljarða króna í október það ár,? segir greiningardeildin.

Ný íbúðalán banka og sparisjóða voru 3,8 milljarða króna í nóvember og jukust lítillega frá mánuðinum á undan. ?Fjöldi nýrra útlána var 374 í nóvember, en var 388 í október. Upphæð og fjöldi nýrra útlána innlánsstofnana hefur lítið breyst frá því í sumar og virðist hafa náð jafnvægi, að minnsta kosti tímabundið.

Í nóvember drógust ný útlán Íbúðalánasjóðs saman um fimmtung frá sama mánuði í fyrra og námu 4,7 milljörðum króna, eins og fram kom í Vegvísi. Samdrátturinn er því mun meiri hjá bönkunum og nýju útlánin lægri en hjá Íbúðalánasjóði,? segir greiningardeildin.