Ný íslensk ferðaskrifstofa hefur tekið til starfa. Hún nefnist VITA og er rekin af Iceland Travel, sem er dótturfélag Icelandair Group.

Í fréttatilkynningu frá Icelandair segir að rekstur VITA verður byggður á grunni Iceland Travel, sem tekið hefur á móti erlendum ferðamönnum og skipulagt ráðstefnur á Íslandi. Hjá Iceland Travel starfa um 60 manns í dag.

Næsta vetur mun VITA leggja megináherslu á sólarfrí á Kanaríeyjum og skíðafrí á Ítalíu. Auk þess býður VITA borgarferðir og ferðir til Florida með áætlunarflugi Icelandair og í haust verða í boði pakkaferðir til Taílands, Balí og fleiri staða í Asíu.

Til stendur að auka ferðaúrvalið þegar líður á haustið.