Icelandair og Air Iceland Connect hafa í dag, miðvikudaginn 27. maí, hleypt úr hlaði nýrri markaðsherferð undir yfirskriftinni „Kynnumst upp á nýtt!“. Markmið hennar er að hvetja Íslendinga til að ferðast innanlands í sumar að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

„Um er að ræða pakkaferðir til Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar og Reykjavíkur. Þannig verður boðið upp á flug, bíl og gistingu á sérkjörum auk þess sem viðskiptavinir munu njóta afslátta í samstarfi við fjölmarga ferðaþjónustuaðila víða um land. Icelandair hefur í áratugi skipulagt borgarferðir fyrir viðskiptavini sína til ýmissa borga beggja megin Atlantshafsins. Flestir þekkja vel slagorðin „Flug og bíll“ eða „Flug og hótel“ í því samhengi. Að sama skapi hefur Air Iceland Connect um árabil skipulagt pakkaferðir fyrir innanlandsmarkað, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki," segir í tilkynningu.

Herferðin mun standa til 31. ágúst og verður því hægt að nýta þessi kjör í allt sumar.

„Við finnum fyrir miklum vilja hjá landsmönnum til að kynnast landinu upp á nýtt og ferðast innanlands í sumar. Því höfum við lagt upp í þessa herferð í samstarfi við fjölmarga samstarfsaðila víða um land sem eru vel í stakk búnir til að taka á móti gestum í sumar. Íslendingar kunna að gera það besta úr aðstæðunum hverju sinni og við viljum nýta þau tækifæri sem nú gefast til að bjóða landsmönnum upp á aukin þægindi við ferðalög innanlands. Hér er allt til staðar, flugvélar, bílaleigubílar, hótel og óteljandi afþreyingarmöguleikar, svo ekki sé minnst á okkar fallegu náttúru,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs Icelandair.