Ný ríkisstjórn mun taka við völdum í dag en ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til tveggja funda á Bessastöðum í dag.

Fyrri fundurinn hefst kl. 17:00, þar sem fyrsta ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur lýkur störfum. Seinni fundurinn hefst kl. 18:15 þar sem forseti Íslands mun skipa annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur.

Þá mun ný ríkisstjórn kynna stjórnarsáttmála og ráðherrasæti síðar í dag.