Frá og með áramótum hefur greiðsla húsaleigubóta færst frá jöfnunarsjóði sveitarfélaga til nýstofnaðrar Greiðslustofu húsnæðisbóta.

Þetta er í samræmi við lög um húsnæðisbætur sem Alþingi samþykkti vorið 2016 og tóku gildi nú um áramótin. Falla á sama tíma úr gildi lög um húsaleigubætur og hlutverk sveitarfélaganna varðandi stuðning til leigjenda.

„Jöfnunarsjóður hefur um árabil greitt framlög til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum samkvæmt lögum um húsaleigubætur,“ segir í frétt Innanríkisráðuneytisins .

„Í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga í apríl 2008 var kveðið á um 60% kostnaðarþátttöku ríkisins í greiðslu sérstakra húsaleigubóta og hefur því sjóðurinn frá árinu 2008 jafnframt greitt framlög til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á sérstökum húsaleigubótum.

Markmið laga um húsnæðisbætur  er að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum.

Vinnumálastofnun annast framkvæmd húsnæðisbótakerfisins sem er fjármagnað úr ríkissjóði. Sjá má nánari upplýsingar um húsnæðisbætur á vefnum husbot.is um umsóknarferlið auk þess sem þar er að finna reiknivél sem hjálpar leigjendum að átta sig á fjárhæð mögulegra húsnæðisbóta.“