Ný samgöngumiðstöð að Holtagörðum verður helsti brottfararstaður hjá Gray Line rútuferðum. Áætlað er að daglegum gestum í Holtagarða fjölgi um rúmlega 1000. AVIS og Budget bílaleigur verða einnig með stóra afgreiðslustöð í Holtagörðum

Reitir fasteignafélag, eigandi Holtagarða, hefur undirritað leigusamninga við Gray Line Iceland og við ALP hf., sem rekur Avis og Budget bílaleigur, um húsnæði í Holtagörðum. Gray Line þjónustar aðallega erlenda ferðamenn í dagsferðum með leiðsögumanni auk þess að bjóða upp á áætlunarferðir á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur í tengslum við öll áætlunarflug sem fara um alþjóðaflugvöllinn. Nær daglega fara hópferðabílar félagsins frá Reykjavík í ferðir á vinsælustu ferðamannasvæði frá Jökulsárlóni í austri að Látrabjargi í vestri. Áformað er að flestallar ferðir Gray Line hefjist og endi í Holtagörðum, minni bílar flytja ferðamenn til og frá gististöðum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í Holtagörðum munu ALP sameina aðalskrifstofu sína ásamt stórri leigustöð fyrir Avis og Budget. Þar verður einnig fullkomin þvottastöð og verkstæði.

Nýtt þjónustu- og veitingatorg

Samgöngumiðstöðin verður í suðvestur hluta hússins og verða töluverðar breytingar gerðar á húsnæðinu, bílastæðinu og umferðarflæði í tengslum við þessa nýju starfsemi. Verið er að vinna að hönnun á veitingatorgi og skipulagi á svæði fyrir verslanir með varning fyrir ferðamenn. Unnið er að endurhönnun aðkomunnar að húsinu í samráði við borgaryfirvöld. Engin fyrirtæki flytja úr Holtagörðum í tengslum við þessa breytingu.