Þriðja serían af House of Cards kemur á föstudag á Netflix í heild sinni. Þetta er jafnframt síðasta serían.

Fjallað var um þættina í sérblaði haustið 2013. Þar sagði m.a.

Bandaríska Spilaborgin á sér fyrirmynd í breskum þáttum undir sama nafni. Breska ríkisútvarpið,BBC, framleiddi þrjár þáttaraðir af þeim, House of Cards, To Play the King og Final Cut, á árunum 1990 til 1996. Þeir eru byggðir á bókum Michaels Dobbs sem var skrifstofustjóri hjá Íhaldsflokknum.

Þann 18. nóvember 1990, tveimur dögum áður en kosið var um leiðtoga Íhaldsflokksins eftir að Margrét Thatcher fékk mótframboð frá Michael Heseltine, var fyrsti þátturinn sýndur.

Í þættinum segir Thatcher af sér og nýr leiðtogi er kosinn. Án efa veikti þátturinn Thatcher (höfundur hélt þessu m.a. sjálfur fram) og hafði áhrif á hina raunverulegu niðurstöðu.