Ný stjórn Auðhumlu svf. var kjörin í gær á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í Hofi á Akureyri. Auðhumla svf. er móðurfélag Mjólkursamsölunnar en sagt var frá stjórnarkjörinu á vefsíðu Landssambands kúabænda. Eftirtaldir hlutu kosningu til stjórnar:

  1. Elín Margrét Stefánsdóttir, Fellshlíð með 49 atkv.
  2. Jóhanna Hreinsdóttir, Káraneskoti með 44 atkv.
  3. Egill Sigurðsson, Berustöðum með 38 atkv.
  4. Birna Þorsteinsdóttir, Reykjum með 36 atkv.
  5. Ásvaldur Þormóðsson, Stórutjörnum með 35 atkv.
  6. Jóhannes Torfason, Torfalæk með 34 atkv.
  7. Sæmundur Jón Jónsson, Árbæ með 33 atkv.