Ný stjórn var kjörin á framhaldshluthafafundi Exista hf. sem fram fór í dag. Stjórnina skipa H. Ágúst Jóhannesson, Halldór Bjarkar Lúðvígsson, Magnús Magnússon, Sesselja Árnadóttir, Þórarinn V. Þórarinsson. Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Magnús Magnússon skipaður formaður að því er fram kemur í tilkynningu.

Í tilkynningunni kemur fram að á sama tíma hætta í stjórn Exista og dótturfélögum þess þeir Lýður Guðmundsson og  Ágúst Guðmundsson. Jafnframt hafa forstjórar félagsins þeir Erlendur Hjaltason og Sigurður Valtýsson látið af störfum hjá félaginu auk þess sem þeir hafa sagt sig úr stjórnum dótturfélaga Exista.

„Exista hefur átt í viðræðum við kröfuhafa sína undanfarna mánuði og eru þessar breytingar liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins," segir í tilkynningunni.