Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, skipaði í dag nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins.

Hún er sem hér segir:

  • Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, Phd, formaður stjórnar
  • Kristín Haraldsdóttir, lögfræðingur, LLM.
  • Jón Þ. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri, tilnefndur af Seðlabanka Íslands
  • Óskar Sigurðsson, héraðsdómslögmaður, varamaður
  • Þóra M. Hjaltested, lögfræðingur, varamaður
  • Guðrún Ögmundsdóttir, sérfræðingur, tilnefnd af Seðlabanka Íslands, varamaður