Á aðalfundi Forritara framtíðarinnar, sem fram fór fimmtudaginn 29. september síðastliðinn, var sjóðnum kjörin ný stjórn. Þetta segir í fréttatilkynningu á vef Forritara framtíðarinnar.

„Í stjórninni sitja áfram Guðmundur Tómas Axelsson, markaðs- og samskiptastjóri Reiknistofu bankanna (RB), Ragnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Landsbankans og Sigfríður Sigurðardóttir, skrifstofustjóri CCP. Inn í stjórnina koma ný Bjarki Snær Bragason, deildarstjóri hugbúnaðardeildar hjá Össuri og Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský, og koma í stað Katrínar Dóru Þorsteinsdóttur, forstöðumanns hugverkaiðnaðar og mannauðs hjá Samtökum iðnaðarins og Sigríðar Olgeirsdóttur, framkvæmdastjóra rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka,“ kemur fram í tilkynningunni.

Sjóðurinn var stofnaður árið 2014 og markmið hans er að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Samtals hefur sjóðurinn úthlutað 30 milljónum í styrki og þjálfað 300 kennara til að kenna forritun frá stofnun.