Guðmundur Hafsteinsson víkur fyrir Huld Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sem stjórnarformaður Icelandic Startups. Ný stjórn var kjörin á aðalfundi á dögunum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stjórn Icelandic Startups fyrir starfsárið 2021 – 2022 skipa Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands, Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, og Soffía Kristín Þórðardóttir, Product Portfolio Manager, Origo - Product Labs.

Úr stjórninni véku sem fyrr segir Guðmundur Hafsteinsson, fráfarandi formaður stjórnar, auk Rakel Garðarsdóttur og Þorsteini G. Gunnarssyni, sem verið hefur í stjórninni í áratug.

Huld Magnúsdóttir, stjórnarformaður Icelandic Startups:

„Nýsköpun á Íslandi stendur á tímamótum um þessar mundir og sjaldan hefur nýsköpunarumhverfið verið jafn spennandi og nú. Fram undan eru bjartir tímar þar sem bæði stjórnvöld og einkafyrirtæki eru sammála um mikilvægi þess að efla nýsköpun hér á landi enn frekar. Það mun fela í sér miklar framfarir og efla íslenskt viðskiptalíf til muna.“