Á hluthafafundi VBS fjárfestingarbanka (VBS) sem að haldin var í gær var kjörin ný stjórn og varastjórn félagsins. Þá var heimild fengin til að víkja frá ákvæðum í starfskjarastefnu og samþykkt að breyta samþykktum félagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá VBS.
Á fyrsta fundi stjórnar sem haldin var strax að loknum hluthafafundi var Páll Þór Magnússon kjörin stjórnarformaður.
Eftirfarandi menn voru kjörnir í stjórn:
- Páll Þór Magnússon , formaður stjórnar
- Sigrún Helgadóttir
- Páll Þór Jónsson
- Angantýr V. Jónasson
- Birgir Ómar Haraldsson
Eftirfarandi menn voru kjörnir í varastjórn:
- Jón Kristjánsson
- Símon Sigurður Sigurpálsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Willum Þór Þórsson
- Sigþór Sigurðsson