Ný stjórn Öryrkjabandalags Íslands var kjörin á aðalfundi félagins nú um helgina.

Ellen Calmon var endurkjörin sem formaður bandalagsins en í framboði til formanns var einnig Guðjón Sigurðsson.

Halldór Sævar Guðbergsson var sjálfkjörinn sem varaformaður og Bergur Þorri Benjamínsson var sjálfkjörinn sem gjaldkeri.