Aðalfundur Pírata í Reykjavík var haldinn í gær í höfuðstöðvum Pírata, Fiskislóð 31. Á fundinum var kosið í nýja stjórn Pírata í Reykjavík.

Nýr formaður Pírata í Reykjavík er Katla Hólm Vilbergs- og Þórhildardóttir.

Aðrir í stjórn eru Gissur Gunnarsson, Andrés Helgi Valgarðsson, Þuríður Björg Þorgrímsdóttir og Bergþór H. Þórðarson.

Varamenn eru  Guðrún ‘Bitur’ Ólafsdóttir, Ólafur Evert Úlfsson, Snorri Kristjánsson, Rúnar Björn Herrera Þorkelsson og Davíð Arnarson.

Einnig voru kjörnir tveir skoðunarmenn reikninga en það eru Helgi Njálsson og Kári Gunnarsson.

Samkvæmt nýrri könnun Viðskiptablaðsins yrðu Píratar stærsti flokkurinn ef gengið yrði til kosningar í dag og fengu þeir sjö af 23 fulltrúum í borgarstjórn.