Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2005 til 2006. Ný koma inn í stjórnina þau Guðmundur Ásgeirsson Nesskipum, Gunnar Sverrisson Íslenskum aðalverktökum, Hrund Rudolfsdóttir Lyfjum og heilsu, Loftur Árnason Ístaki, Óskar Magnússon Tryggingamiðstöðinni og Ragnhildur Geirsdóttir FL Group.

Úr stjórninni ganga þau Finnur Ingófsson VÍS, Kristján Björn Garðarsson Kísiliðjunni, Sigurður Helgason Icelandair, Sigurður Á. Sigurðsson Búri, Stefán Friðfinnsson Íslenskum aðalverktökum og Þorsteinn Már Baldvinsson Samherja.

Stjórn SA 2005-2006 skipa:

Ingimundur Sigurpálsson, formaður Íslandspóstur
Arnar Sigurmundsson Samtök fiskvinnslustöðva
Björgólfur Jóhannsson Síldarvinnslan
Brynjólfur Bjarnason Landssími Íslands
Eiríkur Tómasson Þorbjörn-Fiskanes
Friðrik Jón Arngrímsson Landssamband ísl. útvegsmanna
Gunnar Sverrisson Íslenskir aðalverktakar
Grímur Sæmundsen Bláa lónið
Guðmundur Ásgeirsson Nesskip
Hreiðar Már Sigurðsson Kaupþing banki
Hjörleifur Jakobsson Olíufélagið
Hrund Rudolfsdóttir Lyf og heilsa
Jens Pétur Jóhannsson Rafmagnsverkstæði Jens Péturs.
Kristín Jóhannesdóttir Baugur Group
Loftur Árnason Ístak
Óskar Magnússon Tryggingamiðstöðin
Ragnhildur Geirsdóttir FL Group
Rannveig Rist Alcan á Íslandi
Sveinn Hannesson Samtök iðnaðarins
Þorgeir Baldursson Prentsmiðjan Oddi
Vilmundur Jósefsson Gæðafæði