Aðalfundur Samtaka verslunar og þjónustu var haldinn í gær en á honum var ný stjórn samtakanna kosin. Margrét Sanders var endurkjörin formaður SVÞ en hún er framkvæmdastjóri Deloitte. Meðstjórnendur sem voru endurkjörnir voru Ari Edwald, Árni Stefánsson og Margrét G. Flóvenz.

Þrír stjórnarmenn viku úr stjórninni en það voru þau Guðrún Jóhannesdóttir, Kokka ehf., Hörður Gunnarsson, Olíudreifing ehf., Eysteinn Helgason, Kaupás ehf. Í stað þeirra komu inn í stjórnina Áslaug Hulda Jónsdóttir, Hjallastefnan ehf., Gestur Hjaltason, ELKO ehf. og Sigríður Margrét Oddsdóttir, Já hf.

Hér má nálgast ársskýrslu SVÞ.