Um áramótin tekur ríkið yfir eignarhlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun. Samkvæmt lögum sem samþykkt voru nú desember flyst forræði ríkisins fyrir Landsvirkjun frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti til fjármálaráðuneytis og fyrirtækið verður sameignarfélag í eigu ríkisins og Eignarhluta ehf. að því er kemur fram í frétt Landsvirkjunar.

Í samræmi við hin nýju lög var í morgun haldinn aukafundur þar sem skipuð var ný stjórn yfir Landsvirkjunar frá áramótum fram til næsta reglulegs aðalfundar sem verður í apríl nk. Stjórnin verður nú skipuð fimm mönnum í stað sjö áður.


Frá 1. janúar nk. skipa eftirtaldir stjórn Landsvirkjunar:
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður, Öngulsstöðum
Ágúst Einarsson, prófessor, Seltjarnarnesi
Margrét Sanders, löggiltur endurskoðandi, Reykjanesbæ
Valur Valsson, fyrrverandi bankastjóri, Reykjavík
Jóna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur, Akureyri


Varamenn verða:
Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, bóndi, Egilsstöðum
Sveinn Agnarsson, hagfræðingur, Reykjavík
Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri, Hveragerði

Þórður Sverrisson, forstjóri, Hafnarfirði
Ágústa Björnsdóttir, útibússtjóri, Egilsstöðum


Jóhannes Geir og Ágúst Einarsson voru í stjórn Landsvirkjunar fyrir en úr stjórninni ganga:


Álfheiður Ingadóttir, útgáfustjóri, Reykjavík
Illugi Gunnarsson, hagfræðingur, Reykjavík
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, Akureyri
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi, Reykjavík
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, Reykjavík