Ný stjórn Iðunnar tók við á aðalfundi sem haldinn var í síðustu viku. Fulltrúar Samtaka iðnaðarins eru þær Guðrún Birna Jörgensen, viðskiptastjóri á framleiðslusviði samtakanna, og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála. Þetta kemur fram í frétt á vef Samtaka iðnaðarins .

Á myndinni eru Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri IÐUNNAR, Eyjólfur Bjarnason, Guðrún Birna Jörgensen, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Finnbjörn Hermannsson, Guðmundur Helgi Þórarinsson, Guðmundur Ingi Skúlason, Hilmar Harðarson og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson.

Á myndina vantar tvo stjórnarmenn sem eru Georg Páll Skúlason og Þráinn Lárusson.