Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað í stjórn Tryggingastofnunar ríkisins. Formaður stjórnarinnar er sem fyrr Stefán Ólafsson prófessor.

Tveir stjórnarmenn í nýrri stjórn sátu einnig í fráfarandi stjórn, Stefán og Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Ný í stjórninni eru þau Ásta Möller, fyrrverandi alþingismaður og varaformaður stjórnar, Halldóra Magný Baldursdóttir, fulltrúi gæðamála hjá OR og Sigrún Aspelund, skrifstofumaður.

Samkvæmt lögum um almannatryggingar skipar ráðherra fimm manna stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, formann og varaformann úr þeim hópi og jafnmarga menn til vara. Stjórn stofnunarinnar skal staðfesta skipulag hennar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Stjórnin skal jafnframt hafa eftirlit með starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og að rekstur stofnunarinnar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.

Varamenn í nýrri stjórn eru þau Bryndís Friðgeirsdóttir kennari, Elín Jóhannsdóttir leikskólakennari, Guðjón Snæfeld Magnússon, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, Guðmundur Fylkisson aðalvarðstjóri, og Petrea Ingibjörg Jónsdóttir.