Embætti ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu þar sem eindregið er varað við nýrri tegund fjársvikabréfa, svokallaðra Nígeríubréfa, sem berast í tölvupósti. Embættið segir að í umræddu fjársvikabréfi, sem borist hafi nokkrum aðilum hér á landi, þykist sendandinn vera endurskoðandi við PRIME BANK í London. Hann segist leita eftir samstarfi við heiðarlegan aðila í því skyni að flytja úr landi rúmar 8,5 milljónir sterlingspunda og lofar að upphæðinni verði skipt til helminga.

„Þetta er enn ein tegundin af tölvupósti sem sendur er út í þeim tilgangi að svíkja fé út úr auðtrúa fólki. Svokölluð Nígeríubréf innihalda gylliboð sem ekki eru á rökum reist. Að baki þeim standa óprúttnir aðilar sem svífast einskis. Því miður hafa margir Íslendingar látið glepjast og fjárhagslegt tjón þeirra er umtalsvert,” segir í tilkynningu ríkislögreglustjóra.

Embættið minnir á að svikahrapparnir beita ýmsum brögðum og velþekkt sé brella þeirra sem þykist vera fulltrúar erlendra ríkisstjórna. „Gjarnan eru sendar tilkynningar þar sem fólki er lofað ótrúlegustu hlutum. Dæmi um það er að upplýsa fólk um að þess bíði vænn arfur. Svikahrapparnir notast einkum við tölvupóst en talið er að 1% viðtakenda láti blekkjast. Til að koma málum af stað er viðkomandi fenginn til að leggja fram ákveðna upphæð sem vindur stöðugt upp á sig. Sífellt þarf að bæta við upphæðina svo arfurinn, eða hvað það nú er, geti komist í réttar hendur. Stöðugt eru færðar fram nýjar afsakanir til að hafa enn meira fé af hinum hrekklausu.”  Embættið segir einnig algengt að „happdrættisvinningar” séu nýttir í blekkingarskyni. Viðtakandi fær þá tilkynningu um að hann hafi hlotið vinning. Síðar er viðtakanda greint frá því að hann þurfi að leggja fram tiltekna upphæð áður en vinningurinn verði greiddur út. Málið vindur síðan upp á sig og stöðugt er leitast við að hafa meira fé af fórnarlambinu. „Almenningur ætti einnig að varast slíkar tilkynningar en umfram allt að leita til lögreglu þegar gylliboðin berast og grunsemdir vakna. Það er margt að varast, ekki síst í netviðskiptum,” segir ríkislögreglustjóri.