„Þetta frumvarp boðar nýja frjálshyggjutilraun í íslenskum stjórnmálum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir 2015. Hún segir að í fjárlagafrumvarpinu birtast áform ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um að láta velferðarsamfélagið mæta afgangi á sama tíma og dregið sé úr samneyslunni úr 28% í 24,5% af vergri þjóðarframleiðslu á fjórum árum.

„Þetta þýðir í raun að Ísland færist úr flokki með Norðurlöndunum, þar sem samneyslan er alls staðar um eða yfir 30%, yfir í hóp þjóða þar sem velferðarkerfið er mjög veikt,“ segir Katrín og bætir við: „Með þessu er í raun verið að boða róttækar samfélagsbreytingar í anda stefnu sem ég hélt að væri fullreynd hér á landi og mun skerða kjör almennings verulega. Því miður virðist vera búið að opna aftur tilraunastofu um nýfrjálshyggjuna.“

Fram kemur í tilkynningu frá VG að þingflokkur VG bendi á að í fjárlagafrumvarpinu sé boðaður mikill tilflutning á skattbyrðinni frá útgerðarfyrirtækjum og stóreignafólki til almennings í landinu. Samtals verður ríkissjóður af 12 milljörðum í niðurfellingu auðlegðarskatts og lækkun veiðigjalda á árinu á sama tíma og virðisaukaskattur á mat, bækur og ýmsar nauðsynjar er næstum tvöfaldaður. Þetta mun koma verst við lágtekjuhópa og venjulegar fjölskyldur, og alls óljóst hvaða áhrif svokallaðar mótvægisaðgerðir hafa í því sambandi. Þingflokkurinn mun fara fram á úttekt á áhrifum þessara skattabreytinga á ólíka tekjuhópa og krefjast þess að ekki verði ráðist í neinar skattabreytingar sem hygla hátekjuhópum á kostnað tekjulægri hópa.“