Bandaríski fjölmiðillinn New York Times ætlar að fækka þeim greinum sem gestir vefsíðu sinnar geta lesið án áskriftar úr 20 á mánuði í 10. NY Times ræðst í þessar breytingar aðeins ári eftir að þeir hófu að krefjast áskrifargjalds fyrir vefsæipu sína. Breytingarnar taka gildi í apríl, að því er kemur fram í frétt Business News.com

Netáskrifendur eru um 454 þúsund talsins og hefur fjöldinn tvöfaldast á síðustu níu mánuðum. Til samanburðar eru áskrifendur að prentuðu útgáfu New York Times um 771 þúsund.