B-Class hefur fengið nýtt og ferskara útlit sem er með sportlegum og áberandi línum. Innanrýmið er nútímalegt og frísklegt með hágæða búnaði og efnisvali. Þessi vinsæli bíll fæst nú sjálfskiptur með hinu fullkomna 4MATIC aldrifskerfi frá Mercedes-Benz sem gerir hann enn meira spennandi við íslenskar aðstæður.

B-Class er í boði með aflmiklum en sparneytnum bensín- og dísilvélum og fæst nú einnig aftur í metanútfærslu. Metan verður sífellt hagkvæmari kostur hér á landi, bæði umhverfis- og fjárhagslega. B-Class verður að sjálfsögðu fáanlegur í fjölbreyttum útfærslum og hægt er velja margskonar samsetningar í aukabúnaði.

Frumsýningin á nýjum B-Class verður í sýningarsal Öskju nk. laugardag kl. 12-16. Auk hins nýja B-Class verða til sýnis sérlega glæsilegir S-Class og CLA 45 AMG. Auk þess verða ýmis sértilboð á ýmsum aukahlutum og rúðuþurrkum. Þá býðst eigendum Mercedes-Benz bifreiða, sem koma á sýninguna, að fá fría rúðuvökvaáfyllingu á bíla sína. Léttar veitingar verða í boði fyrir sýningargesti.