Nýfjárfestingar hafa verið 509 talsins upp á 58,9 milljarða króna frá því slík viðskipti voru heimiluð 30. október fyrir þremur árum. Þetta var fyrsta skrefið í losun gjaldeyrishafta.

Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum að af heildarfjárhæðinni hafa 154 nýfjárfestingar verið losaðar að fullu fyrir 18,1 milljarð króna í erlendum gjaldeyri og 32 nýfjárfestingar verið losaðar að hluta fyrir jafnvirði 6,6 milljarða í erlendum gjaldeyri.

Alls hafi því verið samþykkt losun á 193 nýfjárfestingum í heild eða hluta fyrir 24,7 milljarða króna.

Tekið er fram að samkvæmt 2. gr. b og 20. gr. h - í skilmála um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið er heimilt að afsala sér heimild til sölu nýfjárfestingar og kaupa á erlendum gjaldeyri fyrir söluandvirði fjárfestingar gegn því að skráð nýfjárfesting sé ígildi „álandshluta“ uppgjörs vegna þátttöku fjárfestis í fyrrnefndri fjárfestingarleið.

Samkvæmt því hafa 105 nýfjárfestingar af þeim 193 sem hafa verið losaðar verið afsalað vegna þátttöku í fjárfestingarleið, alls upp á 12,5 milljarðar. Þá hafa 88 nýfjárfestingar af 193 verið losaðar með hefðbundnum hætti, þ.e.a.s. að sala fjárfestingar hafi hlotið staðfestingu Seðlabankans, skv. 5. mgr. 13. gr. m og söluandvirði fjárfestingarinnar falli ekki undir takmarkanir laganna um gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingar á milli landa.