Í hlutafjárútboði Nýherja hf. sem fram fór dagana 17. til 25. mars skráði 81 úr hópi hluthafa og starfsmanna fyrirtækisins sig fyrir öllu hlutafé sem var í boði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja.

Útgefið hlutafé sem var til sölu nam 29.097.447 hlutum á genginu 22 kr. fyrir hvern hlut og var heildarsöluverð útboðsins því kr. 640.143.836.

Meðal nýrra hluthafa eru 45 starfsmenn Nýherja hf. og dótturfélaga og verða nú 9,4% heildarhlutafjár í eigu starfsmanna félagsins. Ekki kom til skerðingar vegna umframeftirspurnar í útboðinu.

Nýherji mun gefa út hlutafé að nafnverði 45 milljónir króna, en af því verða 15.902.553 hlutir nýttir sem greiðsla til fyrrum eigenda TM Software hf, en 29.097.447 hlutir hafa nú verið seldir núverandi hluthöfum og starfsmönnum samstæðunnar.

„Niðurstöður hlutafjárútboðsins eru ánægjulegar og sýna kjölfestufjárfestar að þeir hafa mikla trú á rekstri og framtíð fyrirtækisins. Einnig er jákvætt  hversu margir starfsmenn tóku þátt, en nú eru tæplega 10% hlutafjár í eigu starfsmanna,“ segir Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja í tilkynningunni.

Stefnt er að því að hækka hlutafé Nýherja hf. og skrá hina nýja hluti í Verðbréfaskráningu Íslands eigi síðar en 1. apríl 2008 og skráning þeirra í OMX Kauphöll Íslands eigi síðar en 2. apríl 2008.